YOGER börn er spilastokkur með 30 mismunandi vatnsmáluðum jóga stöðum fyrir börn (á öllum aldri).
Íris Ösp Heiðrúnardóttir er hönnuðurinn á bak við YOGER BÖRN. Hún málaði myndirnar og samdi textann á hverju korti sem skrifaður er með það í huga að sem flestir geti tekið þátt í iðkuninni og lestrinum.
Úr þessum 30 stöðum er hægt að útbúa margskonar jóga rútínur og skemmtilega leiki fyrir börn á öllum aldri.
Spilin eru úr 180 gr. plasthúðuðum pappír og er stærð þeirra 10 x 14 sm svo auðvelt sé að lesa upplýsingarnar.