
Inga Elín skapar vörur sem sameina handverk og listrænan blæ. Hver einasta vara er handgerð úr fínasta postulíni sem völ er á, sem tryggir bæði gæði og einstakan karakter.
8.800 kr.
Til á lager
Frítt með Dropp af pöntunum yfir 19.900 kr.
Til að fagna 10 ára afmæli fyrstu alþjóðlegu plötu KALEO, A/B, lítur hljómsveitin yfir farinn veg og leiðir hugann aftur til heimabæjarins Mosfellsbæjar í samstarfi við listamanninn og hönnuðinn Ingu Elínu.
Í tilefni þessa merka áfanga í sögu KALEO hannaði Inga Elín nýja línu af Veltibollum undir áhrifum plötunnar. Bollarnir eru handmálaðir, úr sterku postulíni, og gefnir út í takmörkuðu upplagi.
Hvert verk er unnið úr hágæða postulíni, hábrennt og handmálað til að endast vel og lengi. Verkin þola vel uppþvottavélar og örbylgjuofna.