
Seletti, saga framtíðarsýnar og þróunar. Allt frá stofnun þess árið 1964 hefur fyrirtækið fylgt því hlutverki sínu að nýta fagmennsku, þjónustu og umfram allt endalausar vörurannsóknir í leit sinni við að bæta og skapa.
15.990 kr.
Til á lager
Frítt með Dropp af pöntunum yfir 19.900 kr.
Músalampinn frá Seletti, hannaður af Marcantonio, er lítil hvít mús sem heldur stolt á ljósaperunni sem hún stal rétt í þessu. Tengist með USB — við tölvuna, hleðslubankann eða millistykkið.
Þegar músin er ekki að narta í ost elskar hún að standa við hliðina á þér með ljósaperuna sína. Músalampinn er orðinn eitt af einkennisverkum ítalska hönnunarhússins Seletti og setur leikgleði í hvaða rými sem er — á náttborðið, skrifborðið eða í barnaherbergið.
Lampinn er úr resíni, tengist með USB (5V) og notar meðfylgjandi E14 LED peru með hlýju ljósi (2200K). Aðeins ætlaður til notkunar innandyra.
Hönnun: Marcantonio fyrir Seletti.