Reykjavík Letterpress er hönnunarstofa stofnuð haustið 2010 af grafísku hönnuðunum Hildi Sigurðardóttur og Ólöfu Birnu Garðarsdóttur. Auk þess að bjóða upp á alhliða grafíska hönnun hefur stofan sérhæft sig í Letterpress prentun, aldargamalli prentaðferð með nútíma tvisti.
Ástríða fyrir grafískri áferð og þeirri dýpt sem prentaðferðin gefur skilar sér í margskonar fallegum prentgripum svo sem nafnspjöldum, merkimiðum, boðskortum, glasamottum og svo lengi mætti telja. Einnig hanna þær og framleiða eigin vörulínu þar sem áhersla er lögð á gleði og leik í texta og grafík.