Lodge

Lodge steypujárnspanna (30,5cm)

13.990 kr.

Til á lager

1

Frítt með Dropp af pöntunum yfir 19.900 kr.

Ekki gleyma með!

Innpökkun

Klassísk 30,5 cm steypujárnspanna frá Lodge, framleidd í Bandaríkjunum síðan 1896. Forherðuð með jurtaolíu og tilbúin til notkunar beint úr kassanum.

Lodge steypujárnspönnurnar eru bakaðar og olíubornar við framleiðsluna og mynda með tímanum náttúrulega viðloðunarfría húð. Pannan dreifir og heldur hita einstaklega vel og hentar til að brúna, steikja, baka og grilla — á öllum hellum, þar með talið span, í ofni, á grilli og yfir opnum eldi.

Pannan nær gríðarlega miklum hita og er því frábær til að loka steikum, til dæmis til að klára Sous Vide eldun með stökkri skorpu.

Umhirða: Ekki nota sápu á pönnuna. Þurrkið hana mjög vel eftir þvott og olíuberið — notið þó ekki ólífuolíu þar sem hún þránar fyrr. Forðist að elda tómata og annan sýruríkan mat til lengri tíma, því sýran fer illa með járnið.

ATH: Grípið aldrei um handfangið við eldun nema með ofnhanska.

Efni
Steypujárn, forhert með jurtaolíu
Þvermál
30,5 cm
Hentar á
Allar hellur, þ.m.t. span — einnig ofn, grill og opinn eldur
Ofnþol
Má fara í ofn og á grill; handfangið verður mjög heitt
Má fara í uppþvottavél
Nei
Umhirða
Handþvottur án sápu. Þurrkið strax og berið á þunnt lag af olíu — ekki ólífuolíu.

Tengdar vörur