Grillpönnurnar er hægt að nota á hvaða hellur sem er til að steikja bæði kjöt og grænmeti. Hægt er að skella þeim beint inn í ofn eftir steikingu.
Efniviður
Járn
Stærð
26,5 x 26,5 CM
Lodge hafa framleitt steypujárn í bænum Suður-Pittsburg síðan árið 1896. Verksmiðjan er nú ein eftirlifandi sinnar tegundar í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur verið fjölskyldurekið frá upphafi og er nú í höndum fjórðu kynslóðar Lodge fjölskyldunnar. Árið 2002 byrjuðu Lodge með nýja línu sem þau kalla Lodge Logic en þá er steypujárnið bakað í feiti og tilbúið til notkunar. Nú eru allar vörur frá þeim meðhöndlaðar á þennan hátt áður en þær fara úr verksmiðjunni og því er ekkert því til fyrirstöðu að skella pönnunni eða pottinum beint á helluna. Steypujárn hefur lengi verið staðalbúnaður í eldhúsum en gengur ný í endurnýjun lífdaga eftir að hafa þótt heldur gamaldags í nýjungagjörnu samfélagi. Engan skyldi undra því steypujárn er bæði fjölhæft og endingargott. Steypujárn er ekki ryðfrítt. Gott er að bera olíu á járnið sem ryðvörn.