Klassísk peysa, prjónuð úr vel teygjanlegri og mjúkri 100% alpaca ull sem fer vel með viðkvæma húð.
Afapeysan er ein af okkar allra vinsælustu vörum ásamt afabuxunum.
100% Alpaca ull.
Tímalaus íslensk hönnun sem vex með barninu.
Þau hjá AS WE GROW hugsa um hvert skref sem þau taka, frá hönnun til efnisvals og frá framleiðslu á flíkinni til áframhaldandi lífdaga hennar.
Sérkenni hönnunar AS WE GROW felst í því að stærðirnar duga allt að því helmingi lengur en stærðir hefðbundinna barnafata. Þetta gerir það að verkum að barnið getur haldið áfram að nota flíkurnar í lengri tíma á meðan það vex úr grasi, sem orsakar minni sóun og færri kostnaðarsamar verslunarferðir fyrir foreldrana.