
Starf Sólheima byggir á grunni sem Sesselja Hreindís Sigmundsdóttir lagði, grunni sem mótaður er af íslenskum veruleika í byrjun 20. aldar, mannspeki Rudolf Steiner og kristilegum gildum. Hugmyndafræði Dr. Karls König og Global Eco-village Network og nálganir Järna í Svíþjóð eru meðal þeirra þátta sem einnig hafa áhrif á hugmyndafræði Sólheima í dag. Dr. König, eins og Sesselja, lagði ríka áherslu á að fólk með sérþarfir deildi jöfnum kjörum með öðru fólki í leik sem starfi.
11.900 kr.
Uppselt
Frítt með Dropp af pöntunum yfir 19.900 kr.
Doppa er höfundarverk Kristjáns Atla Sævarssonar. Gerðar hafa verið 300 afsteypur í númeruðum eintökum af verkinu en þau voru unnin undir handleiðslu Egils Valdimarssonar. Ágóði af sölu verksins rennur til höfundar og Sólheima.