Frískandi – Eykur blóðflæði – Dregur úr þrota
Andlitsrúlla úr krystöllum hefur verið vinsælt tól í fegurðarrútínum síðan á 7. öld í Asíu. Rúllan virkar sem andlitsnudd sem hjálpar við að draga úr þrota og bólgum, eykur teygjanleika húðarinnar, þrengir svitaholur og eykur blóðrásina. Hjálpar einnig húðvörum að dragast betur inn í húðina.
Hreinn Kvars er þekktur sem “Heilunar Meistari” og gefur skýrleika, hreinsun og skilyrðislausa ást.
Notkun:
1) Byrjið á hökunni og rúllið lárétt í átt að hárlínu. Þrýstingur ætti að vera léttur og þægilegur á húðinni.
2) Hreyfið rúlluna upp að nefinu og rúllið frá nösum og út að eyrum.
3) Notið litla endann á andlitsrúllunni og staðsetjið við innri krók augnanna. Rúllið í átt að hárlínu.
4) Staðsetjið rúlluna á augabrúnir og rúllið niður með þeim í átt að gagnaugum.
5) Rúllið frá augabrún uppávið, yfir ennið og upp að hárlínu.
6) Endið með að rúlla frá miðju ennis lárétt í átt að gagnaugum.
Til að auka kælingu og róandi áhrif, setjið rúlluna í kæli áður en hún er notuð.